Hólmfríður Bára 3 ára

Hólmfríður Bára 3 ára

Þann 22. júlí verður Hólmfríður Bára 3 ára og héldum við upp á daginn hennar hér í Krílakoti í dag.

Hólmfríður Bára málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum henni til heiðurs.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn og eftir

 sönginn bauð hún öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Hólmfríði Báru og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn. 

Kveðja frá öllum í Krílakoti.