Hjóladagur föstudaginn 4. júní

Hjóladagur föstudaginn 4. júní

Líkt og fram kemur á skóladagatali og mánaðarskrá fyrir júní er hjóladagur á föstudaginn. Hann verður með breyttu sniði nú í ár þar sem 4 og 5 ára börnin eru nú komin á Kátakot. Nú setjum við upp hjólabraut inni í garðinum í stað þess að vera úti á götu eins og venjan hefur verið. Börnin mega koma með hjól eða    sparkbíla. Við setjum upp hjólabraut með umferðarskiltum og slysavarnarkonur kíkja í heimsókn. Þau börn sem koma með tvíhjól verða að vera með hjálma.