Í gær 29. maí varð Hilmir Þeyr 2 ára og héldum við upp á daginn hans hér í Krílakoti í dag.
Hilmir Þeyr málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum honum til heiðurs.
Í söngstund sungum við fyrir hann afmælissönginn og eftir
sönginn bauð hann öllum á Skýjaborg upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Hilmi Þey og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti.