Þann 4. febrúar varð Hilmar Jóel 6 ára og af því tilefni
héldum við upp á afmælið hans hér í Kátakoti þann dag.
Hilmar Jóel bjó sér til fallega kórónu, blés á kertin 6 og
bauð svo öllum í Sólkot upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Að því loknu fór hann út og flaggaði fánanum í tilefni dagsins.
Við óskum Hilmari Jóel og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.
Bestu kveðjur frá öllum í Kátakoti.