Í dag 4. febrúar varð Hilmar Jóel 5 ára
og héldum við upp á afmælið hans hér í Kátakoti í dag.
Hilmar Jóel bjó sér til þessa fallegu kórónu, blés á kertin 5
og bauð svo öllum í Mánakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Einnig fór hann út og flaggaði íslenska fánanum í tilefni dagsins.
Við óskum Hilmari Jóel og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.