Hilmar Jóel 4 ára

Hilmar Jóel 4 ára

   

Í dag 4 febrúar varð Hilmar Jóel 4 ára og héldum við upp á daginn hans hér í Krílakoti

Hilmar Jóel málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum honum til heiðurs.

Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn ásamt fleiri lögum.

Eftir sönginn bauð hann öllum á Hólakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.

Við óskum Hilmari Jóel og fjölskyldu hans til hamingju með daginn. 

Kveðja frá öllum í Krílakoti.