Þann 24. október varð Hákon Daði 2. ára. En vegna veikinda gátum við ekki haldið upp á það fyrr en mánudaginn 2. nóvember. Hann byrjaði daginn á því að búa sér til kórónu, bauð öllum upp á ávexti og svo sungu allir afmælissönginn í tilefni dagsins. Einnig fór hann út og flaggaði og var þjónn dagsins. Við óskum honum innilega til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.