Þann 10. júní varð Hákon Bragi 3 ára og héldum við upp
á afmælið hans þann dag hér í Krílakoti..
Hákon Bragi málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Hákon Bragi öllum á Skakkalandi uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Hákoni Braga og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.