Í dag héldum við upp á 2 ára afmælið hans Hafþórs Loga. Hafþór Logi málaði á flottu kórónuna sína og flaggði íslenska fánanum í tilefni dagsins. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja. Eftir sönginn fengu sér allir ávexti úr ávaxtakörfunni. Við óskum Hafþóri Loga og fjölskyldu hans til hamingju með daginn. Bestu kveðjur frá öllum í Krílakoti.