Guðrún Erla

Guðrún Erla

Guðrún Erla varð 3. ára í dag 25. nóvember. Hún bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni kom Krummi í heimsókn til okkar og hann söng með okkur afmælissönginn og afmælisbarnið blés á kertin þrjú. Eftir sönginn bauð Guðrún Erla öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni. Við óskum Guðrúnu Erlu og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Skakkalandi.