Á laugardaginn næsta, 14. mars verður Guðný Jóna 3 ára
og við héldum upp á afmælið hennar hér í Krílakoti í dag.
Guðný Jóna bjó sér til þessa fallegu kórónu, blés á kertin 3
og bauð svo öllum í Hólakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Einnig fór hún út og flaggaði íslenska fánanum í tilefni dagsins.
Við óskum Guðnýju Jónu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með morgundaginn.