Gleðilega páska

Gleðilega páska

Komið sæl

Það hefur verið mikið að gera í Krílakoti undanfarna daga. Mikil útivera í blíðunni, rólegheit í leik og páskaföndur.

Fjögur afmæli voru haldin í dag, ávaxtaveisla og flaggað í tilefni dagsins.
Á Skakklandi hélt Barri uppá 3 ára afmælið sitt og Iðunn hélt uppá 2 ára afmælið sitt en þau eiga bæði afmæli á morgun 17. apríl.
Á Hólakoti hélt Sigurður Nói uppá 4 ára afmælið sitt en hann á afmæli þann 20 apríl og María Aðalrós hélt uppá 4 ára afmælið sitt en hún á afmæli þann 21 apríl. Við óskum þeim öllum innilega til hamingju og myndir frá afmælisdeginum koma inn á heimasíðuna eftir páska.

Njótið þess að vera til og gleðilega páska

Bestu kveðjur frá öllum í Krílakoti