Fréttir af Búlgaríuförunum

Fréttir af Búlgaríuförunum

Í morgun heyrðist frá Búlgaríuförunum okkar, þeim Örnu og Steinunni. Þær voru þá nýkomnar úr fjallgöngu og á leið í skólaheimsókn. Ströng dagskrá hefur verið hjá hjá hópnum, frá 9 að morgni fram til 11 að kvöldi, en auk vinnufunda og heimsókna í leikskóla hafa þær m.a. heimsótt grunnskóla, farið í ferðamannaþorp og í móttöku hjá bæjarstjóra.

Það verður gaman að sjá og heyra það sem þær hafa í farteskinu þegar þær koma til baka og við munum örugglega setja myndir á síðuna frá ferðinni.