Fréttabréf og mánaðarskrár o.fl.

Fréttabréf og mánaðarskrár o.fl.

Líkt og fram kom í síðasta fréttabréfi höfum við ákveðið að fækka bréfunum og láta hvert og eitt spanna yfir lengri tíma. Síðasta fréttabréf kom út um síðustu mánaðarmót og nær til 1. apríl og næsta fréttabréf mun fjalla um apríl fram í ágúst. Mánaðarskrár munu hins vegar halda áfram að koma út um hver mánaðarmót.

Við munum halda áfram að bæta heimasíðuna okkar, setja inn fréttir, myndir og annað fróðleik. Við höfum einnig tekið í gagnið Mentor kerfið sem gerir okkur kleift að senda foreldrum á auðveldan hátt tölvupóst með hinum ýmsu skilaboðum. Þeir foreldrar sem ekki hafa fengið aðgang að mentorkerfinu eru beðnir um að hafa samband við okkur hér á Krílakoti og sendum við lykilorð um hæl. Þau ykkar sem eigið börn í Dalvíkurskóla fáið sjálfkrafa aðgang að upplýsingum um barn ykkar sem hér dvelur.

Til að fara inn á mentor upplýsingakerfið farið þið á www.mentor.is