Foreldraráð Krílakots

Foreldraráð Krílakots

Foreldraráð Krílakots kom saman á sínum fyrsta fundi í gær, þriðjudaginn 17. mars. Í ráðinu eru:

María Rakel Pétursdóttir, formaður (móðir Viktoríu Fannar á Hólakoti)

Margrét Magnúsdóttir, ritari (móðir Elvars Ferdinands á Skakkalandi)

Margrét Laxdal, meðstjórnandi (móðir Odds Freys á Skakkalandi)

Einnig mun leikskólastjóri starfa með ráðinu.

Í lögum um leikskóla kemur eftirfarandi fram um foreldraráð í leikskólum:

,,Kjósa skal foreldraráð við leikskóla og skal leikskólastjóri hafa frumkvæði að kosningu í ráðið. Í foreldraráði sitja að lágmarki þrír foreldrar. Skal kosning til foreldraráðs fara fram í september á ári hverju og skal kosið til eins árs í senn. Foreldraráð setur sér starfsreglur. Leikskólastjóra ber að starfa með foreldraráði. Leikskólastjóri getur sótt um undanþágu til sveitarfélags um stofnun foreldraráðs ef gildar ástæður eru fyrir hendi, svo sem vegnn fámennis í leikskóla.

Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskóla og nefndar, sbr. 2. mgr. 4 gr., um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytinga á leikskólastarfi.“        

                                11. gr. Laga um leikskóla, nr. 90/2008.

Hlutverk ráðsins er því að veita:

• Umsagnir til Krílakots og Fræðsluráðs varðandi:
o skólanámskrá
o aðrar áætlanir

• Og fylgjast með:
o framkvæmd skólanámskrár
o framkvæmd annarra áætlana
o kynningu skólanámskrár
o kynningu annarra áætlana

 Næsti fundur ráðsins er áætlaður þann 14. apríl nk.