Foreldrar taka þátt í endurbótum á lóð Krílakots

Foreldrar taka þátt í endurbótum á lóð Krílakots

Snemma í morgun var hópur foreldra mættur í garð Krílakots til að vinna ásamt þeim George og Sarka að endurbótum. á hádegi kom svo Myriam frá Skeiði með heita og ljúffenga súpu og Kornelia mamma hans kom með snúða handa vinnufólkinu. Látum hér nokkrar myndir fylgja með og eins og sést þá var blíðskaparveður, góður hópur að störfum og börn jafnt sem fullorðnir lögðu hönd á plóg. Með krafti og jákvæðni foreldra geta stórkostlegir hlutir gerst.