Fleiri fréttir af starfsfólki

Fleiri fréttir af starfsfólki

Í frétt sem skrifuð var þann 13. ágúst sl. þar sem sagt er frá breytingum í starfsmannahópnum, láðist að segja frá einni breytingu. Auk Birgittu, sem mun nema leikskólakennarafræði í haust og Gerðar, sem er á leið í diplómunám í sömu fræðum (þ.e. framhaldsnám), þá mun hún Sigrún (Skakkaland) einnig setjast á skólabekk í haust. Sigrún sem er leikskólakennari verður í leyfi frá störfum fram á næasta sumar, en hún mun nema við kennaradeildina á Akureyri og taka B. Ed. gráðu í leikskólakennarafræðum í vetur og óskum við henni góðs gengis.