Eydís Adda 3 ára

Eydís Adda 3 ára
Eydís Adda 3 ára

Á sunnudaginn, 8. október, verður elsku Eydís Adda okkar þriggja ára. Við héldum afmælisdaginn hennar hátíðlegan í dag eins og okkar er von og vísa. Hún málaði og skreytti kórónu sem hún var með á afmælisdaginn. Við sungum fyrir hana afmælissönginn, hún blés á kertin þrjú og bauð svo upp á ávexti úr afmæliskörfunni. Í útiverunni flaggaði hún svo íslenska fánanum í tilefni dagsins. Við óskum Eydísi Öddu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.