Í dag 26.febrúar héldum við upp á 5. ára afmæli hennar Elmu Maríu. Í tilefni dagsins setti hún upp glæsilegu kórónuna sína sem hún skreytti sjálf, blés á kertin 5, gaf afmælisávexti og nemendur og kennarar sungu fyrir hana. Í útiveru flaggaði hún síðan íslenska fánanum. Við á Krílakoti óskum Elmu Maríu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.