Í dag héldum við upp á 3 ára afmælið hans Einars en hann átti afmæli 4. maí.
Einar málaði á flottu kórónuna sína og flaggaði hann að sjálfsögðu íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn, hann hefur stækkað í nótt og þetta er afmæliskveðja.
Eftir sönginn fengu sér allir ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Einari og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Bestu kveðjur frá öllum í Krílakoti