Deildarstjóri í leikskólann Krílakot

Deildarstjóri í leikskólann Krílakot

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir deildarstjóra í 100% starf frá 12. ágúst 2014. Leitað er eftir einstaklingum með mikinn metnað og áhuga á að takast á við fjölbreytt og gefandi starf. Skólar í Dalvíkurbyggð eru Grænfánaskólar og starfa eftir hugmyndafræði Uppbyggingastefnunnar.

Gildi sviðsins eru Virðing, Jákvæðni og Metnaður. Dalvíkurbyggð er fjölmenningarlegt samfélag.


Umsóknarfrestur er til 18. maí 2014.


Menntunar- og hæfniskröfu:

* Leikskólakennaramenntun
* Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
* Góð skipulags- og leiðtogahæfni
* Framúrskarandi hæfni í samskiptum og sterk þörf til að ná árangri í starfi
* Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
* Hreint sakavottorð


Umsóknum, ásamt ferilskrá, skal skilað til leikskólastjóra, Drífu Þórarinsdóttur, á netfangið drifa@dalvikurbyggd.is

Nánari upplýsingar veitir Drífa í síma 466 1372 og á netfangið drifa@dalvikurbyggd.is