Deildarstjóra vantar í leikskólann Kátakot

Dalvíkurbyggð auglýsir eftir deildarstjóra í leikskólann Kátakot, 100% starf frá 12. ágúst 2014. Leitað er eftir einstaklingum með mikinn metnað og áhuga á að takast á við fjölbreytt og gefandi starf. Skólar í Dalvíkurbyggð eru Grænfánaskólar og starfa eftir hugmyndafræði Uppbyggingastefnunnar. Umsóknarfrestur er til 6. júlí 2014.

 
Gildi sviðsins eru Virðing, Jákvæðni og Metnaður.


Dalvíkurbyggð er fjölmenningarlegt samfélag.


Menntunar- og hæfniskröfu:
• Leikskólakennaramenntun
• Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
• Góð skipulags- og leiðtogahæfni
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum og sterk þörf til að ná árangri í starfi
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hreint sakavottorð


Umsóknum, ásamt ferilskrá, skal skilað til leikskólastjóra, Drífu Þórarinsdóttur, á netfangið drifa@dalvikurbyggd.is  Nánari upplýsingar veitir Drífa í síma 460 4950 og á netfangið drifa@dalvikurbyggd.is