Daníel Örn 3 ára

Daníel Örn 3 ára

 Í dag 19. apríl varð Daníel Örn 3 ára og af því tilefni

héldum við upp á afmælið hans hér í Krílakoti í dag.

Daníel Örn bjó sér til fallega kórónu, blés á kertin  og

bauð svo öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr afmæliskörfunni.

Að því loknu fór hann út og flaggaði fánanum í tilefni dagsins.

Við óskum Daníel Erni og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.

Bestu kveðjur frá öllum í Krílakoti.