Á sunnudaginn, 19. apríl á Daníel Örn 2 ára afmæli
og við héldum upp á afmælið hans hér í Krílakoti í dag.
Daníel Örn bjó sér til þessa fallegu kórónu, blés á kertin 2
og bauð svo öllum í Hólakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Einnig fór hann út og flaggaði íslenska fánanum í tilefni dagsins.
Við óskum Daníel Erni og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.