Í dag 25. ágúst héldum við upp á 3. ára afmælið hans Davíðs Þórs, en hann á afmæli þann 28. ágúst.
Davíð Þór málaði sér kórónu og skreytti hana. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og
hann blés á kertin þrjú. Eftir sönginn bauð hann öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni.
Við óskum Davíð Þór og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.