Dagur tónlistarinnar 9. nóvember

Dagur tónlistarinnar 9. nóvember

Í tilefni af Degi tónlistarinnar, þriðjudaginn 9. nóvember kl. 10:30, verður haldin tónlistar-uppákoma í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík. Þá munu börn fædd 2007, 2006 og 2005 á leikskólunum Krílakoti, Kátakoti og Leikbæ vera með atriði. En þau eru þátttakendur í verkefninu Tónar eiga töframál og er það Þuríður Sigurðardóttir leikskólakennari á Krílakoti sem hefur séð um kennsluna.

Kaldo Kiis skólastjóri Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar stjórnar uppákomunni, en hann er jafnframt verkefnastjóri Tóna eiga töframál.

Öllum foreldrum, öfum og ömmum, yngri systkinum og öðrum áhugasömum er boðið að koma og gleðjast með okkur.