Dagur leikskólans

Dagur leikskólans

 

Í tilefni af Degi leikskólans sunnudaginn 6. febrúar, verður haldin tónlistar-uppákoma í Menningarhúsinu Bergi föstudaginn 4. febrúar kl. 10:00.

Þá munu börn fædd 2007, 2006 og 2005 á leikskólunum Krílakoti, Kátakoti og Leikbæ vera með atriði. En þau eru þátttakendur í samstarfsverkefni leikskólanna og Tónlistarskólans Tónar eiga töframál og er það Þuríður Sigurðardóttir leikskólakennari á Krílakoti sem hefur séð um kennsluna.

Öllum foreldrum, öfum og ömmum, yngri systkinum og öðrum áhugasömum er boðið að koma og gleðjast með okkur.