Dagur að láni - sýning fyrir foreldra

Dagur að láni - sýning fyrir foreldra

Eins og fram kom fyrr í þessari viku frestuðum við sýningunni Dagur að láni sem átti að vera í gær, fimmtudag. En sýningin er hluti af því Comeniusarsamstarfsverkefni sem Krílakot er þátttakandi í. Sýningin verður þess í stað á þriðjudaginn, 2. mars. Foreldrum og öðrum þeim sem hafa áhuga er boðið að koma á milli kl. 08:00 og 11:00 og líta á það sem við höfum tekið okkur fyrir hendur undanfarna fimmtudaga. En þá höfum við 'fengið dag að láni' frá Englandi, Rúmeníu, Tyrklandi, Póllandi og Búlgaríu.