Dagskrá fyrir opna viku á Krílakoti dagana 9. - 13. maí

Dagskrá fyrir opna viku á Krílakoti dagana 9. - 13. maí

Við bjóðum foreldra, systkini, afa og ömmur, frænkur og frændur og aðra áhugasama velkomna í heimsókn til okkar vikuna 9.-13. maí. Við opnum dyrnar og bjóðum áhugasömum að kíkja inn, fylgjast með og taka þátt í starfinu.


Hægt verður að heimsækja skólann á opnunartíma, eða frá kl. 7:30 til 16:15 og taka þátt í leik og starfi með börnum og kennurum. Fólki er velkomið að kíkja til okkar oftar en einu sinni. Nokkrar stöðvar verða uppi alla vikuna; hægt verður að taka sér pensil í hönd og mála mynd, leika sér með skugga og liti í myndvarpanum, föndra, spila o.s.frv. Á föstudaginn býður svo foreldrafélagið í kaffi frá kl. 14.30 – 15:30


Þessa daga verður hefðbundin dagskrá/dagskipulag, en hér má nálgast nánari dagskrá yfir vikuna: Hólakot, Skakkaland, Skýjaborg.