Comeniusarferð

Comeniusarferð

Í næstu viku verða Arna, Fanney (Skakkaland) og Maja (Hólakot) í Comeniusarferð í Driffield í Englandi. En þessi ferð er hluti af samstarfsverkefni okkar með skólum í Póllandi, Rúmeníu, Búlgaríu, Tyrklandi auk Englands.

Elstu börnin okkar í Íþróttahópi hafa unnið að því síðastliðna daga að mála fiska sem þær stöllur hafa meðferðis til að færa samstarfsfélögum okkar. En hvert landanna vinnur með eina hátíð í verkefninu og hjá var það Fiskidagurinn mikli sem varð fyrir valinu.