Þann 24. september varð Brimar Sandi 4 ára og héldum við upp á daginn hans hér í Kátakoti í gær.
Brimar Sandi málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum honum til heiðurs.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og eftir
sönginn bauð hann öllum í Mánakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Brimari Sandi og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Kátakoti.