Í dag 24. september varð Brimar Sandi 3 ára og
héldum við upp á afmælið hans í dag hér í Krílakoti.
Brimar Sandi málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Brimar Sandi öllum á Hólakoti uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Brimari Sanda og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum í Krílakoti.