Í dag 24. september varð Brimar Sandi 2 ára og héldum við upp á afmælið hans í dag í Krílakoti.
Brimar Sandi málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin tvö.
Eftir sönginn bauð Brimar Sandi öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Brimari Sanda og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.