Breytingar í starfsmannamálum

Mánudaginn, 19. maí, kemur nýr leikskólakennari til starfa á Hólakot sem heitir Ágústa Kristín Bjarnadóttir. Á sama tíma flyst Bjarney yfir á Skýjaborg þar sem hún tekur við sérkennslu af Ólu sem hefur hætt störfum hér á Krílakoti. Næstkomandi haust mun Ágústa Kristín taka við deildarstjórn af Þóru á Hólakoti, en Þóra ætlar að færa sig um set og hefur störf við Dalvíkurskóla nk. haust.  Um leið og við bjóðum Ágústu Kristínu velkomna til starfa, þá þökkum við Ólu kærlega fyrir samstarfið og óskum henni velfarnaðar á nýjum vettvangi. Starfsmannamál næstkomandi skólaárs eru óðum að skýrast og munum við bráðlega greina betur frá þeim.

B.kv. Dagbjört