Breytingar á Skakkalandi

Breytingar á Skakkalandi

Í dag byrjaði nýr strákur á Skakkalandi það er hann Oddur Atli Guðmundsson og verður hann í Bangsahóp hjá Örnu. Við bjóðum hann og fjölskyldu hans velkomin til okkar. Í síðustu viku hætti hún Ingdís Una hjá okkur og þökkum við henni fyrir skemmtilegan tíma og um leið óskum við henni og fjölskyldu hennar góðs gengi á nýjum stað. Í dag hætti einnig hún Þura okkar á Skakkalandi en sem betur fer er hún ekki að fara langt frá okkur, því á morgun 1. febrúar byrjar hún á Hólakoti. Takk Þura okkar fyrir frábæran og skemmtilegan tíma hjá okkur. Kveðja frá okkur öllum á Skakkalandi börn og starfsfólk.