Börn og tónlist

Börn og tónlist

Okkur barst ábending um skemmtilega síðu á vefnum sem kallast Börn og tónlist. Eins og nafnið gefur til kynna er hér um að ræða síðu sem tileinkuð er tónlist og börnum. Ég hvet alla sem áhuga hafa til að skoða síðuna, þar er margt skemmtilegt að finna.

Á myndinni hér fyrir ofan má sjá nokkra af yngstu nemendum skólans í tónlistarstund hjá henni Þuru aðstoðarskólastjóra. Þetta eru þeir Kristján, Iman, Ísar og einnig sést aðeins í hann Orra.