Bolla, bolla, bolla

Bolludagurinn var á mánudaginn eins og allir vita. Nemendum í 1. og 2. bekk sem voru í heimilisfræði þann dag og eins og gefur að skilja var skellt í bolludeig. Börnin voru ákaflega dugleg og áhugasöm við bollubaksturinn. Afraksturinn nemenda voru ljúfengar bollur sem nemendur gæddu sér á í lok tímans. Hér eru myndir frá bakstrinum.