Bleikur október

Bleikur október

Komið sæl

Á föstudaginn á að vera Grænn dagur samkvæmt skipulagi vetrarins. Við vorum búin að gleyma Bleikum október þegar skóladagatalið var gert ev við viljum endilega breyta litadeginum og styðja við bleika daginn.

Af því tilefni ætlum við að hafa bleikan tugludag föstudaginn 11. október. Á þessum degi getur orðið mikill ruglingur í skólanum og mæta sumir í bleikum fötum eða öfugum, náttfötum eða fötum af systkini sínu. Allt er til gamans gert og vonandi vekur þessi dagur mikla kátínu hjá börnum, foreldrum og starfsfólki

   

Til upplýsinga:

Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár, en bleikur er baráttudagur októbermánaðar, mánuður Bleiku slaufunnar. Njótum dagsins saman og vekjum um leið athygli á árvekni átaki Bleiku slaufunnar og baráttu gegn krabbameini.

Bleikar kveðjur frá öllum í Krílakoti.