Þann 17. mars varð Birnir Snær 3 ára og héldum við uppá afmælið hans í dag hér í Krílakoti.
Birnir Snær málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Birnir Snær öllum á Skakkalandi uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Birni Snæ og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.