Fimmtudaginn 19. maí varð Birna Lind 3 ára og héldum við upp á daginn hennar þann dag. Hún bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hana afmælissönginn. Eftir sönginn bauð Birna Lind öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni. Við óskum Birnu Lind og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.