Birkir Orri 4 ára

Birkir Orri 4 ára

Þann 16. júní héldum við upp á 4. ára afmælið hans Birkis Orra.  Hann málaði sér kórónu  og skreytti hana.  Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin fjögur. Eftir sönginn bauð Birkir Orri öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni. Við óskum Birkir Orra og fjölskyldu innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.