Bergvin Daði 4 ára

Bergvin Daði 4 ára

Bergvin Daði varð 4 ára þann 26. janúar og héldum við upp á daginn fimmtudaginn 27. janúar. Hann bjó sér til kórónu og fór út og flaggaði íslenska fánanum. Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin fjögur.  Eftir sönginn bauð Bergvin Daði öllum á Hólakoti upp á ávexti úr afmælisávaxtakörfunni, einnig var hann þjónn dagsins.Við óskum Bergvin Daða og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn frá okkur öllum á Hólakoti.