Þann 17. apríl varð Barri 3. ára og héldum við upp á daginn hans hér í Krílakoti þann 16. apríl.
Barri málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum honum til heiðurs.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og eftir
sönginn bauð hann öllum á Skakkalandi upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Barra og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Krílakoti.