þann 24. desember verður hann Baldvin Már 5 ára
og héldum við upp á afmælið hans hér í Kátakoti í gær.
Baldvin Már bjó sér til þessa fallegu kórónu, blés á kertin 5
og bauð svo öllum í Kátakoti upp á ávexti úr afmæliskörfunni.
Einnig fór hann út og flaggaði íslenska fánanum í tilefni dagsins.
Við óskum Baldvin Má og fjölskyldu hans innilega til hamingju með daginn.