þann 24. desember verður Baldvin Már 3 ára og héldum við uppá afmælið hans í dag hér í Krílakoti.
Baldvin Már málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Baldvin Már öllum á Skakkalandi uppá ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Baldvini Má og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Skakkalandi.