Bækur að láni

Bækur að láni

Í Krílakoti er nú hægt að fá lánaðar bækur. Í forstofunni er vagn með bókum á og geta foreldrar valið bók með barni sínu og tekið með sér heim. Skrá þarf nafn barns, nafn á bókinni, hvenær bókin er tekin að láni og hvenær henni er skilað. Markmiðið er að styðja við læsi, að hvetja foreldra til að skoða bækur og lesa fyrir börnin.