Árni Stefán 3 ára

Árni Stefán 3 ára

Í dag (28. september) héldum við upp á 3. ára afmælið hans Árna Stefáns.  Hann bjó sér til kórónu á föstudaginn var og setti hana upp um leiða og hann mætti í leikskólann í dag. Hann fór út og flaggaði og bauð öllum upp á ávexti. Í ávaxtastundinni sungu allir afmælissönginn fyrir hann í tilefni dagsins. Einnig var hann þjónn dagsins. Við óskum honum til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.