Arney Emma 5 ára

Arney Emma 5 ára

Í dag héldum við upp á 5. ára afmæli Arneyjar. Í tilefni dagsins setti hún upp glæsilegu kórónuna sína, blés á kertin 5, gaf afmælisávexti og nemendur og kennarar sungu fyrir hana. Í útiveru flaggaði hún síðan íslenska fánanum. Við í Krílakoti óskum Arney Emmu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.