Þann 29. september varð Arnar Geir 5 ára og
héldum við upp á daginn hans hér í Kátakoti þann dag.
Arnar Geir málaði á kórónuna sína og við flögguðum íslenska fánanum honum til heiðurs.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og eftir
sönginn bauð hann öllum í Sólkoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Arnari Geir og fjölskyldu hans til hamingju með daginn.
Kveðja frá öllum í Kátakoti.