Þann 29. september verður Arnar Geir 3 ára og héldum við upp á afmælið hans í dag í Krílakoti.
Arnar Geir málaði sér kórónu og flaggaði íslenska fánanum.
Í ávaxtastundinni sungum við fyrir hann afmælissönginn og hann blés á kertin þrjú.
Eftir sönginn bauð Arnar Geir öllum á Hólakoti upp á ávexti úr ávaxtakörfunni.
Við óskum Arnar Geir og fjölskyldu hans til hamingju með daginn frá öllum á Hólakoti.